Hoppa yfir valmynd
Úrskurðarnefnd velferðarmála - Atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir

Mál nr. 577/2021 - Úrskurður

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 577/2021

Fimmtudaginn 3. febrúar 2022

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. nóvember 2021, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2021, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 22. desember 2020 og var umsókn hennar samþykkt þann 18. janúar 2021. Þann 9. september 2021 bárust Vinnumálastofnun upplýsingar um að kærandi hefði hafnað starfi hjá B. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 14. september 2021, var óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda vegna höfnunar á umræddu starfi. Engar skýringar bárust frá kæranda. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2021, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. nóvember 2021. Með bréfi, dags. 4. nóvember 2021, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 17. desember 2021 og var hún send kæranda til kynningar með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 20. desember 2021. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi greinir frá því að hún hafi ekki vitað af því að hún hafi fengið tölvupóst frá Vinnumálastofnun og hafi því ekki svarað honum. Þann 3. nóvember 2021 hafi hún ekki fengið atvinnuleysisbætur vegna októbermánaðar og hafi því hringt til Vinnumálastofnunar til að kanna ástæðu þess. Hún hafi fengið þau svör að það hafi verið vegna þess að hún hafi ekki sent skýringar vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B. Kærandi hafi farið í atvinnuviðtal hjá fyrirtækinu þar sem henni hafi verið greint frá því að vinnutíminn væri frá 8:00 til 16:15 en kærandi þurfi að sækja börn sín klukkan 16:00. Það taki um 15 mínútur að keyra frá B til dagmömmunnar og 15 mínútur frá dagmömmunni til leikskóla eldra barnsins. Af þeim sökum hafi atvinnutilboðið ekki hentað henni. Kærandi hafi þurft að byrja að vinna klukkan átta en hún þurfi að fara með börnin til dagmömmu og á leikskóla. Kærandi hafi spurt hvort hún gæti unnið til klukkan 15:30 í staðinn til þess að geta náð að sækja börnin sín en fyrirtækið hafi ekki leyft það eða tekið tillit til þess að hún væri með tvö börn, eitt tæplega tveggja og hálfs árs og annað nýorðið eins árs.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysistrygginga með umsókn, dags. 22. desember 2020. Með erindi, dags. 18. janúar 2021, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%. Þann 9. september 2021 hafi Vinnumálastofnun borist þær upplýsingar að kærandi hefði hafnað starfi hjá B.  Um hafi verið að ræða starf í sælgætisgerð. Samkvæmt upplýsingum frá B hafi kærandi hafnað umræddu starfi þar sem vinnutíminn hafi ekki hentað henni.

Með erindi, dags. 14. september 2021, hafi verið óskað eftir skriflegri afstöðu kæranda á höfnun á starfi hjá B. Athygli kæranda hafi jafnframt verið vakin á því að hafi atvinnuleitandi hafnað atvinnutilboði eða atvinnuviðtali án gildra ástæðna, gæti atvinnuleitandi þurft að sæta biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysistrygginga. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Vinnumálastofnun hafi ekki borist neinar skýringar frá kæranda og hafi kæranda því verið tilkynnt með bréfi, dags. 30. september 2021, að greiðslur atvinnuleysistrygginga til hennar væru stöðvaðar. Ákvörðunin hafi verið tekin á grundvelli 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 3. nóvember 2021. Í kæru skýri kærandi frá aðstæðum sínum. Kærandi greini frá því að vinnutíminn, klukkan 8:00 til 16:15, hafi ekki hentað henni þar sem hún þurfi að sækja börn sín til dagmömmu og á leikskóla klukkan 16:00. Kærandi kveðist hafa óskað eftir því að fá að vinna til klukkan 15:30, en atvinnurekandi hafi hafnað því.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna. Markmið laga um atvinnuleysistryggingar sé að tryggja þeim sem tryggðir séu og misst hafi fyrra starf sitt, tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir séu að leita sér að nýju starfi. Með þessu sé verið að tryggja stöðu og öryggi fólks í atvinnuleysi. Því sé gert ráð fyrir að þeir sem teljist tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins séu í virkri atvinnuleit þann tíma og séu jafnframt reiðubúnir að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum sem þeim standi til boða. Atvinnuleysistryggingar veiti þannig þeim sem tryggðir séu fjárhagslegt úrræði í tímabundnu atvinnuleysi sínu. Ríkar kröfur beri að gera til þeirra sem hafni starfi á innlendum vinnumarkaði um að þeir hafi til þess gildar ástæður samkvæmt lögunum, enda eigi almennt ekki að þiggja atvinnuleysisbætur í stað þess að gegna launuðu starfi.

Eitt af skilyrðum þess að umsækjandi um atvinnuleysisbætur eigi rétt til greiðslna atvinnuleysistrygginga sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í 14. gr. laganna sé nánar kveðið á um hvað teljist til virkrar atvinnuleitar. Þar sé útlistað að umsækjandi þurfi meðal annars að vera reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, vera reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Að öðrum kosti verði ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. 

Í 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um viðurlög vegna höfnunar á starfi. Ákvæðið sé svohljóðandi: 

,,Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Fyrir liggi að kærandi hafi hafnað starfi hjá B í skilningi 1. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Því komi til álita hvort skýringar hennar vegna höfnunar á umræddu starfi séu gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.

Samkvæmt 4. mgr. 57. gr. skuli Vinnumálastofnun meta við ákvörðun um viðurlög samkvæmt 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg, en í 4. mgr. segi orðrétt:

,,Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Vinnumálastofnun sé gert að meta skýringar atvinnuleitenda vegna höfnunar á atvinnutilboði með hliðsjón af þeirri ríku skyldu sem hvíli á umsækjendum um atvinnuleysisbætur til að vera reiðubúnir að taka hvert það starf sem greitt sé fyrir, án sérstaks fyrirvara, og hafa til þess vilja og getu. Það sé gert ráð fyrir því að Vinnumálastofnun sé heimilt að líta til aldurs hins tryggða, félagslegra aðstæðna tengdum skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima við ákvörðun um hvort hinn tryggði skuli sæta viðurlögum samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laganna. Enn fremur sé Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar í boði sé starf fjarri heimili hans sem geri kröfur um að hlutaðeigandi flytji búferlum.

Þær skýringar sem kærandi greini frá í kæru til úrskurðarnefndar velferðarmála hafi ekki legið fyrir þegar ákvörðun um viðurlög á grundvelli 57. gr. hafi verið tekin. Þær skýringar sem kærandi beri fyrir sig í kæru til nefndarinnar snúi að því að vinnutilhögun starfsins hafi ekki hentað henni. Hún eigi tvö börn sem sækja þurfi til dagmömmu og á leikskóla klukkan 16:00. Í athugasemdum með 57. gr. laganna í frumvarpi því sem hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar segi að meta þurfi aðstæður fjölskyldu hins tryggða heildstætt. Sérstaklega sé þó ítrekað að það að hafa ekki barnapössun fyrir ung börn á dagvinnutíma teljist ekki réttlæta höfnun á starfi. Fyrir liggi að vinnutími umrædds starfs hafi verið frá klukkan 8:00 til 16:15. Að mati Vinnumálastofnunar sé því um að ræða starf á dagvinnutíma. Skýringar kæranda þess efnis að vinnutími starfsins henti henni ekki vegna vistunartíma barna hennar séu því ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfi, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. 

Vinnumálastofnun vilji jafnframt vekja athygli á því að við móttöku umsóknar um atvinnuleysistryggingar veiti Vinnumálastofnun öllum atvinnuleitendum leiðbeiningar um hvar finna megi upplýsingar um réttindi og skyldur atvinnuleitanda. Þá sé öllum atvinnuleitendum vísað á heimasíðu Vinnumálastofnunar þar sem meðal annars sé að finna skýrar upplýsingar um afleiðingar þess að hafna starfi án gildra ástæðna. Ákvæði laga um atvinnuleysistryggingar séu skýr hvað varði skyldu atvinnuleitanda til að taka störfum sem í boði séu og um höfnun á atvinnutilboðum.

Með vísan til alls framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að skýringar kæranda vegna höfnunar á atvinnutilboði hjá B geti ekki talist gildar í skilningi laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar. Kæranda beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laganna.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Ákvæði 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006 er svohljóðandi:

„Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 5. mgr. Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.“

Þá segir svo í 4. mgr. 57. gr. laganna:

„Vinnumálastofnun skal meta við ákvörðun um viðurlög skv. 1. mgr. hvort ákvörðun hins tryggða um að hafna starfi hafi verið réttlætanleg vegna aldurs hans, félagslegra aðstæðna sem tengjast skertri vinnufærni eða umönnunarskyldu vegna ungra barna eða annarra náinna fjölskyldumeðlima. Enn fremur er Vinnumálastofnun heimilt að líta til heimilisaðstæðna hins tryggða þegar hann hafnar starfi fjarri heimili sínu sem og til ráðningar hans í ótímabundið starf innan tiltekins tíma. Þá er heimilt að taka tillit til aðstæðna þess sem getur ekki sinnt tilteknum störfum vegna skertrar vinnufærni samkvæmt vottorði sérfræðilæknis. Getur þá komið til viðurlaga skv. 59. gr. hafi hinn tryggði leynt upplýsingum um skerta vinnufærni.“

Óumdeilt er að kærandi hafnaði starfstilboði hjá B en ágreiningur málsins lýtur að því hvort ástæður kæranda fyrir þeirri höfnun hafi verið réttlætanlegar í skilningi 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Kærandi hefur gefið þær skýringar fyrir nefndinni að vinnutíminn frá klukkan 8:00 til 16:15 hafi ekki hentað henni þar sem hún þurfi að sækja börn sín á tvo staði fyrir klukkan 16:00. Hún hafi spurt vinnuveitandann hvort hún gæti unnið til klukkan 15:30 en því hafi verið hafnað.

Í 1. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 er fjallað um almenn skilyrði þess að vera tryggður samkvæmt lögunum. Eitt af þeim skilyrðum er að vera í virkri atvinnuleit samkvæmt 14. gr., en í því felst meðal annars að hafa vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara, sbr. d. lið 1. mgr. ákvæðisins. Í athugasemdum við þetta ákvæði frumvarpsins segir svo:

„Enn fremur þykir ástæða til að taka fram að umsækjandi teljist vera í virkri atvinnuleit þegar hann, frá því að umsókn um atvinnuleysisbætur barst, hefur bæði vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara. Að öðrum kosti verður ekki litið á hlutaðeigandi í virkri atvinnuleit. Felur þetta til dæmis í sér að gert er ráð fyrir að foreldrar í virkri atvinnuleit með ung börn hafi barnapössun en reynslan í núverandi kerfi er að ungt fólk ber oft fyrir sig að það geti hvorki mætt í atvinnuviðtöl né tekið þátt í vinnumarkaðsúrræðum þar sem það hefur ekki gæslu fyrir börn sín.“

Að mati úrskurðarnefndarinnar eru þær ástæður og skýringar sem kærandi hefur gefið ekki þess eðlis að þær réttlæti höfnun á starfinu, sbr. 4. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006. Atvinnutilboð kæranda var á dagvinnutíma og bar henni því að gera ráðstafanir varðandi dagvistun fyrir börn sín þann tíma og þiggja framkomið atvinnutilboð.

Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 30. september 2021, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Úrskurðir, ákvarðanir og aðrar úrlausnir sem birtast á vef Stjórnarráðsins eru á ábyrgð viðkomandi stjórnvalds. 
Stjórnarráðið ber ekki ábyrgð á efni frá sjálfstæðum stjórnvöldum umfram það sem leiðir af lögum.

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum